Pensill
25.08.2006 08:30:49 / pensill

Well Well Well...........

Ég ætla að færa mig um set og býð mínum dyggu lesendum ;) að hafa samband við mig í emailið kaffikelling@hotmail.com ef þeir vilja fá slóðina...........og já ég mun blogga þar annað en hérna heheheheh........ Einnig ætla ég að opna síður fyrir börnin mín fjögur og þær verða læstar..........ef þið viljið fá lykilorð á þær og staðsetningu þá mailið bara á mig líka..... Luv...........Lilja

» 3 hafa sagt sína skoðun

04.01.2006 16:26:58 / pensill

Well..........

Gleðilegt Nýtt Ár c",)

Ég var tölvulaus ansi lengi...........tölvan bilaði.........kom til baka ónýt og svo fékk ég loksins nýja tölvu á Þorláksmessu..........en af okkur er allt mjög gott að frétta..........nýja húsið er gott og stækkuðum við baðherbergið og keyptum okkur baðkar með nuddi og útvarpi..........über þægilegheit á okkur hérna. Kristófer er kominn heim að vinna og er það yndislegt

Fjölskyldan okkar stækkar því von er á erfingja í byrjun maí........semsagt ég er komin 5 mánuði á leið og gengur það allt alveg ágætlega...........börnin eru ánægð hérna í Hveragerði og er ég það líka...........og að sjálfssögðu Kristó hann er ánægður með að vera loksins kominn heim..........

En þetta var smá update af mér og mínum...........áramótaheitið er að vera duglegri að blogga............

Luv.............Pensill


» 17 hafa sagt sína skoðun

24.07.2005 06:30:38 / pensill

Jæja..........þá er að krossa putta og tær c",)

Ég fann mér fallegt lítið einbýlishús...........5 herbergja möguleiki á að hafa það 6 herbergja.........með fallegum og vel hirtum garði............sólpalli og heitum potti............stór stofa............upphengt klósett (sem er svaka munur þegar maður skúrar)............og bauð í það og fékk það tilboð samþykkt

Við flugum í gegnum greiðslumatið............og fáum nánari upplýsingar með lánin eftir helgi og ég vona bara það allra besta.............og litla sæta íbúðin mín er að fara á sölu á mánudaginn og svo bara er ég flutt..............TIL HVERAGERÐIS............og ég hlakka svakalega mikið til...............ég vona bara að allt gangi upp..........endilega krossið putta og tásur með mér :lol:

Síðan verður bara chillað á pallinum í heita pottinum.............Julian fær loksins sér herbergi............ég eignast lítinn fallegan garð með über grænu grasi og yndislegum litlum rósum til að dúlla mér í............með ofnæmislyfjum að vísu :lol:

En nú er ég farin að sofa..........

Luv...............Pensill


» 89 hafa sagt sína skoðun

21.07.2005 02:10:00 / pensill

Well..........komin heim

Jæja...........þetta var nú meiri ferðin............ég fór í yndislegt brúðkaup hjá Völu og Mumma og það var frábært alveg...........hitti Þóru sætu og svona skemmtilegt.

Síðan keyrðum við Julian suður og hlustaði ég á Ljónið, Nornin og Skápurinn á ensku eftir C.S. Lewis megnið af leiðinni...............mjög skemmtilegt...........Bína var farin suður áður til að skreppa í 95 ára afmæli langömmu sinnar á Patreksfirði...........hún kom svo til okkar á miðvikudeginum...............

En Astran mín hún Opel bilaði.............mótorinn eitthvað...........legur............vél og bla bla bla............þannig að við keyptum okkur bara annan bíl..........Mitsubishi Lancer Station...........árgerð 2000 og hann er fínn............það fyndna er að núna í þessu 4ra íbúða húsi sem ég bý í eru 5 bílar...........3 Mitsubishi Lancer Station........einn lítill Mitsubishi og Mitsubishi Pajero jeppi..........og takið eftir að allir þrír Lancer Station bílarnir eru hvítir þannig að það er engin leið fyrir hana Láru mína að skima eftir því hvort ég sé heima..........hún tékkaði alltaf á bílnum nefnilega

En við komum heim á þriðjudagskvöldinu............fluginu var frestað hjá Kristófer þannig að við fengum aukadag saman.............mjög skemmtilegt..........en svo keyrði ég heim með 4 börn og hund :lol:........það var agalega skemmtilegt..........

En nú á ég lítið leyndarmál sem ég fæ úrskurðað á morgun...........og smelli inn fréttum af því ef það fer eins og ég vona.............

Krossið putta fyrir mig..........

Luv...................Pensill


» 64 hafa sagt sína skoðun

03.07.2005 02:02:07 / pensill

Well well..........

Jæja.........á morgun fara börnin á Ástjörn.........úff ég kvíði svolítið fyrir..........enda eru þau litlu krílin mín :cry:

Julian litli er kominn á leikskóla en hann er nú ekkert par ánægður með það..........því hann er alger mömmustrákur og vill bara vera heima með mömmu sinni þessi elska.........hann á samt eftir að sakna systkyna sinna mikið á meðan þau eru í burtu. Stærsta systir hans.......hún Bína.......verður nú samt hjá okkur til 15. ágúst þannig að hann hefur hana þó..........

Svo erum við Julian og Bína að fara suður............ætluðum að fara föstudaginn 8. júlí en svo fékk ég boðskort í brúðkaup þ. 9. júlí þannig að við ætlum að fara í brúðkaupið og bruna svo suður eftir það...........Tilvonandi læknisfrúin mín hún Vala sæta er að fara að gifta sig honum Mumma sínum loksins og við Þóra sæta spæta hlökkum voða til að sjá hana sem fullgilda læknisfrú 8)

Kristófer verður fyrir sunnan og tekur á móti okkur þegar við komum þangað eftir brúðkaupið og verðum við hjá honum í 9 daga fyrir sunnan...........og förum á ættarmót...........Bjarki og Elísabet koma með flugi 15. júlí suður og svo keyri ég heim með börnin 4 þ. 18. júlí.........Þetta verður heljarinnar ferðalag

Þann 2. ágúst ætla ég svo út með krílin 4 til Færeyja til hans Kristófers og verðum við í 2 vikur ca............við hlökkum öll rosa mikið til að fara þangað og chilla aðeins í rólega og fallega umhverfinu í Færeyjum.

Já og hann Steinar bróðir minn er í Danmörku á Roskilde Festival.............mér skylst að þetta sé hér með orðinn árlegur viðburður hjá þeim félögum.........rosa gaman fyrir þá..........hann átti einmitt afmæli um daginn og elduðum við ógó góðan mat og borðuðum.........það var náttúrulega ég......Steinar.........Kató...........Helgi.........Ari........Ingvar..........og Sverrir þetta var hrikalega gaman og gott og sá ég að sjálfssögðu um eldamennskuna :lol:

En nóg að sinni..........

Luv...........Pensill


» 86 hafa sagt sína skoðun

26.04.2005 08:48:00 / pensill

Fyrir Þóru sætu spætu :o)

Jæja..........ekki hef ég skrifað lengi og nú ætla ég að bæta úr því...........Bella og Ugla hafa það rosa gott...........fyrir þá sem ekki vita þá er Bella litla chihuahua tíkin mín úr Barðavogsræktun og Ugla er litla síamsblandaða læðan mín.............Bella er alger frekjumús og prinsessa mikil...........kann ekki að hoppa upp í sófa né úr honum þannig að hún fær þjónustu litla skinnið..........

Börnin mín eldri eru að fara suður til ömmu sinnar næstu helgi og verðum við litli kútur bara ein heima...........Steini bróðir og elsku maðurinn minn eru að fara til London á leik Manchester United og Charlton og vá hvað það verður æðislegt fyrir þá...........síðan kemur allt heila klabbið heim á mánudaginn...........en hann Julian litli er kominn með leikskólapláss og byrjar 13. júní...........við hlökkum alveg óstjórnlega til............

Stór ákvörðun hefur verið tekin á heimilinu...........eldri börnin fara á Ástjörn í júlí.........í 12 daga........það kostar hönd og fót...........en það er ekki eins og þau fái nokkuð að gera neitt né fara..........þau eru alltaf bara hérna hjá mér..........það er hending ef þau fara eitthvað í heimsóknir í lengri tíma en yfir daginn..........Julian verður á leikskólanum og ég verð bara alein að chilla..........upplifa gamla daga "pre children" daga..............vá hvað það verður spúkí..........en það verður bara í svona 5 daga því þá kemur ástin mín heim og við verðum bara 2 að dúlla okkur............vá hvað það verður gaman............Ég elska börnin mín ofurheitt en þau hafa svo gott af því að fara á Ástjörn og gera eitthvað skemmtilegt..........

En nú ætla ég að fara að bæta mig allverulega...........þegar fólk er farið að senda manni persónuleg e-mail til að hrista aðeins upp í manni með skrifin þá tekur maður alveg hinti..........Luv ya Þóra sæta...........:lol:

Luv.............Pensill


» 77 hafa sagt sína skoðun

22.03.2005 19:38:11 / pensill

Nokkuð hefur borið á því........

að ég hef verið spurð um hvar ég fæ þessar jurtir í uppskriftirnar..........ég hef hingað til fengið þetta bara í heilsubúðum og þ.h..........ég skal bara fara og leita upplýsinga í heilsubúðunum um hvaða jurtir ég fæ þar..........og setja það inn hérna.........

Luv..........Pensill........


» 73 hafa sagt sína skoðun

02.03.2005 14:38:06 / pensill

Ég á svo fallega litla tík c",)

Hérna til hliðar getið þið séð nokkrar myndir af litlu prinsessunni minni.........hún er náttúrulega bara æðisleg og ég næ í hana 10 eða 11 mars n.k..........og vá hvað ég hlakka til........

Luv...........Pensill


» 3 hafa sagt sína skoðun

01.03.2005 20:54:49 / pensill

Oh en leiðinlegt :o(

Ég kemst ekki suður.........við höfum ekkert gistipláss og það er meira en að segja það að hýsa 5 manna fjölskyldu og hund............endilega komið með hugmyndir af gistiplássi fyrir mig krúslur........

Luv............Pensill


» 84 hafa sagt sína skoðun

03.02.2005 09:37:43 / pensill

Jo smo

Jæja...........ekkert að frétta svo sem............Laufey sætust kom í heimsókn síðustu helgi og það var mjög gaman að hitta hana............hún er líka svo sæt..........og maðurinn minn kom heim loksins eftir erfiða ferð vegna veðurs.........en ég fór í jarðarför á mánudaginn hjá vini mínum sem var mjög góður maður og hann var "besti fullorðni vinur" dóttur minnar. Það var mjög erfitt.

Dóttir mín átti afmæli um daginn og ætlum við að reyna að halda upp á það næstu helgi............það verður gaman...........hún ætlar að bjóða vinum sínum í smá boð..........Katrín og Lára eru búnar að vera hérna og þær auðvitað alltaf í stuði og þeim er náttúrulega boðið í afmælið hennar.

Ég er að spá í að fara suður um páskana...........nenni ekki að hanga hérna á Akureyri þá og hef hvort sem er enga ástæðu til þess..........ætla frekar að fara suður og heimsækja ættingja mína og vini þar............

En luv....................Pensill


» 83 hafa sagt sína skoðun

24.01.2005 09:02:49 / pensill

Skólastelpa á ný

Jæja mín skellti sér í fjarnám............hjá FAS...........ódýrasta og þægilegasta fjarnámið á Íslandi.

Ég er í landafræði, ensku og fjölmiðlafræði og er ég að plumma mig barasta ágætlega........fékk meira að segja 10 fyrir fyrsta verkefnið í landafræði...........já landafræði af öllu.............verkefni um Búrkína Fasó...........

En ég er á lífi og við sæmilega heilsu og kveð að sinni...........maður verður að læra smá.........

Luv...............Pensill


» 77 hafa sagt sína skoðun

31.12.2004 20:56:57 / pensill

Gleðilegt Nýtt Ár

Ég þakka fyrir árið sem er að líða og óska ég ykkur þess að nýja árið verði gott og jafnvel betra en árið sem er að líða.

Ég sendi hér með áramótakveðjur til ykkar.......

Kristófer........fallegi & góði maðurinn minn sem ég elska ofurheitt

Bjarki Jón........yndislegi sonur minn......sem er orðinn svo stór

Elísabet Helga........litla prinsessan hennar mömmu sinnar....gelgja *hóst*

Julian Carl...........litli freki prinsinn minn........en svo ljúfur

Steinar Óli....allt of myndarlegi litli bróðir minn.......veður í tjellingum.........loksins floginn úr hreiðrinu c",)

Lára Klára

Gerða Pandabeib.........ljóshærði tvíburinn minn fyrir vestan

Ásta Love

Díana Veiðigyðjan mín

Jóhanna Hetjan mín

Þóra "stóra" á Kanarí..........elskan mín

Katrín "skáfrænka mín"

Eva Einars....oh þú ert svo falleg og gáfuð

Hadda Engillinn í mannsmynd

Myslapyslatysla........lögfræðingurinn og ofurmamman

Vala & fallegu stelpurnar hennar c",)

Laufey Hallfríður hin fagra

Davíð sæti sæti frændi minn og yndislegi

Rakel ofurfyrirsæta frænka mín

Hulda Pulda megababe.........."frænka" mín

Árni Valur & sonurinn hann Troy Lambertus

Galdranornin.........að gera skemmtilega hluti.........glettilega líkt mér

Baddi "litli bróðir" fyrir að vera hann sjálfur

Þura vinkona hin yndisfríða & fagra

Ef ég gleymi einhverjum þá bara láta mig vita og ég bæti inn í hið snarasta

En hérna er einn brandari svona til að slútta árinu...........

The Miracle of Toilet Paper

Fresh from my shower, I stand in front of the mirror complaining to my husband that my breasts are too small.

Instead of characteristically telling me it's not so, he uncharacteristically comes up with a suggestion. "If you want your breasts to grow, then every day take a piece of toilet paper and rub it between them for a few seconds."

Willing to try anything, I fetch a piece of toilet paper and stand in front of the mirror, rubbing it between my breasts. "How long will this take?" I asked. "They will grow larger over a period of years," my husband replies.

I stopped. " Do you really think rubbing a piece of toilet paper between my breasts every day will make my breasts larger over the years?"

Without missing a beat he says "Worked for your butt, didn't it?"

He's still alive, and with a great deal of therapy he may even walk again.
Stupid, stupid man.


» 81 hafa sagt sína skoðun

24.12.2004 04:05:24 / pensill

Gleðileg Jól c",)

Gleðileg jól allir saman...........nú er hátíð gengin í garð og megi Guðirnir og Gyðjurnar vernda ykkur öll.........

Megi Hringurinn Vera Opinn
En Óbrotinn
Megi Friður Gyðjunnar Búa Í Hjarta Þér
Í Gleði Við Hittumst
Í Gleði Við Kveðjumst
Í Gleði Við Hittumst Á Ný........

Luv..............Pensill


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.12.2004 05:23:13 / pensill

Oh.....elsku fallegi maðurinn minn c",)

Jæja það er langt síðan maður hefur bloggað.........tölvan mín dó og eftir hálfa nótt í að rífa hana í sundur og setja hana saman aftur þá gafst ég upp.........og hringdi í manninn minn og vældi yfir þessari hörmung.

Elsku fallegi maðurinn minn keypti handa mér nýja tölvu........í jólagjöf.........hann er svo mikið æði að ég á ekki til orð.......þetta er fyrsta tölvan mín sem er keypt út úr búð glæný og vá hvað ég er ánægð........

En hann kemur heim 20. desember og ég hlakka ekkert smá til......hann fór út um miðjan október og hefur ekkert komið heim ef frá er talin ein helgi í nóvember.......hér verður glatt á hjalla þegar hann kemur loksins heim c",)

Langaði bara að deila með ykkur hvað ég á góðan mann

Luv.............Pensill


» 6 hafa sagt sína skoðun

07.12.2004 07:14:54 / pensill

Hrakfallabálkafjölskyldan - Fastakúnnar á Slysó c

Það er nóg að gera hér á þessum bæ þó maður eyði ekki of miklum tíma á slysó........en það gerir engum illt að skreppa annarsslagið út úr húsi og okkar út úr húsi skrepp þessa dagana hefur verið slysó.

Á laugardaginn þá voru stóra systirin og vinkona hennar að leika við litla prinsinn og toguðu of harkalega í hendurnar á honum............og kipptu kallanganum úr olnbogalið á vinstri hendi.........hrikalega vont og leiðinlegt..............en við fórum og létum kippa því í liðinn :lol:

Í gær þá er stóri bróðirinn að leika við litla prinsinn og hafði litli prinsinn brotið Pepsi glas og stígur ekki stóri strákurinn minn á glerbrot og úff............öskrin sem heyrðust........hann risti upp á sér tábergið og blóðið flæddi um..........við upp á slysó.......enda ekkert farið út þennan daginn..........og þar var hann skoðaður og steristrippaður..........það var ekki hægt að sauma..........þetta var stór flipi og svolítið djúpt........úff.........mér stóð nú ekki á sama..........en stóri prinsinn minn hoppar nú um á einum fæti..........nágrönnunum á neðri hæð örugglega til gleði og ánægju

En nóg um þetta í bili..........ég er farin að reyna að koma smá jóla jóla í gang hérna.........er þó búin að setja upp jólagardínur í eldhúsið........

Luv.....................Pensill


» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4